06júní
physio-CHECK, neuro-CHECK, biochem-SHITTTT
jæja kominn tími á smá update...Tók Physiology þann 31.maí, til að gera langa sögu stutta þá hafðist það. Fór síðan í morgun í próf í neuróbiocemistry, fáranlegt próf og óhætt að fullyrða að það hafi hafist. Gott dæmi þess að oflæra fyrir próf. en better be safe than sorry.
En þá hefst fjörið fyrst fyrir alvöru. Stefnan sett a að taka Biochemistry 22. júní. Það verður vægast sagt keyrsla og ansi hætt við að geðrofs-einkennin eigi eftir að magnast allverulega þegar nær dregur. En hún er ansi væn gulrótin við enda ganganna, það styttist í að maður komist á hið ægifagra Ísland í "sumarfrí", það verður yndislegt. en borgar sig ekki að hugsa of mikið um það, það er svo auðvelt að detta inni daydreaming pakkann.....mhm...veiða...þjóðhátíð...american style...famelían...vinirnir...ekki endilega í þessari röð þó.
